Disco Dancing with the rapists...
11.12.2004 19:29:59 / binni29

... this is the end.

Ég hef ákveðið í samvinnu við Jón Hauk að ljúka þessu bloggi.

Í ljósi atburða síðustu daga, þá hef ég ákveðið að taka nýja stefnu á líf mitt, og þar fellur bloggið einfaldlega ekki í þann jarðveg. Það eru sjálfsagt margir sem eiga eftir að telja þetta vera bara tímabundið ástand, en ég hef ákveðið að vera ekki lengur fastur í einhverjum vítahring sem felst í því að blogga.

Ég vil að lokum segja:

Elvar, ég á aldrei eftir að gleyma þér, öllum þeim árum sem við eyddum saman í Hvannahlíðinni og ég mun alltaf varðveita góða skapið þitt í hjarta mér. Söknuðurinn er mikill.

Sjáumst í eilífðinni að handan.

Þinn vinur .

Binni


» 39 hafa sagt sína skoðun

04.12.2004 21:56:49 / binni29

Þeir deyja ungir, sem guðirnir elska.

Elsku vinur.......guð geymi þig og verndar , þú ert kominn á betri stað en við hin ... sjáumst seinna.

Ég mun sakna þín :(


» 48 hafa sagt sína skoðun

03.12.2004 10:46:03 / binni29

Ixnay on the próf-ney!!!

Nú er maður bara á fullum í prófum...creisíness brein sko:lol:

Já, ég var að koma úr 2 enskuprófum sem ég rúllaði upp alveg léttilega...en ég verð að segja frá einni krossaspurningu úr bókinni "A star called henry" sem er um írskan bardagagaur..jeje...en allavega þá voru valmöguleikarnir þessir (að mig minnir)

What is said in this story ?

a. "we got married, an great Irish warrior and a hopeless teacher"

b. "We saw the stars, and landed on the moon."

c. "I love Spain, and the sandy beaches"

d. "We went to Colorado skiing in the mountains, it was so much fun"

... fyrir þá sem eru alveg ´tomir þá er svarmöguleiki A skástur. Ég átti erfitt með mig yfir fullt af þessum krossum, þetta var alveg út í hött :haha: Gotta love Björn Magnússon.

Í dag fer ég að vinna frá 12-19, eftir það fer ég í leik fram í Varmahlíð að keppa með Smáranum gegn Skotfélagi Akureyrar. Eftir það verð ég alveg uppgefinn og fer að sofa hreinlega.

Á Morgun er ég að vinna frá 16-23:30 ... sem þýðir að ég fæ lítinn tíma til að læra fyrir 2 próf sem eru á mán og þri.

Á sunnudaginn er ég að vinna frá 9-16 ... þá fæ ég tíma frá 16 til að læra fyrir Sögu og Stærðfræði. Bið ég því alla um að trufla mig alls ekki því ég ætla að loka mig inni og lesa og lesa og lesa... þetta verður helvíti erfitt helvíti.

Allavega, þá er Binninn mjög busy þessa dagana og biður hann alla fyrirgefningar á því að ég geti ekki hitt ykkur skemmtilega fólkið. Það er bara eftir prófin sem maður verður laus maður, en þá er maður reyndar að vinna líka...helvíti er þetta upptekið líf.

Allavega...hvað er planið um áramótin og annan í jólum ? Er það herbergið mitt annan í jólum aftur ? Þrátt fyrir ótrúlegan hávaða og yfirþyrmandi pirraða foreldra ??

Sjáum til 8|

Lag dagsins: King of my castle - Wandue project

Ekki lag dagsins: Focus - Hokus Pokus

Mottó dagsins: Ef gottið er gott heitir gottið .... Gotti ?


» 98 hafa sagt sína skoðun

01.12.2004 21:51:54 / binni29

Myndir !

MYNDIR FRÁ HELGINNI !!! !ᆦຠϣ剅刭䝉呈›攣散搹㬸䈠剏䕄ⵒ佔㩐⌠捥㥥㡤※佂䑒剅䰭䙅㩔⌠捥㥥㡤※佂䑒剅䈭呏佔㩍⌠捥㥥㡤※䅂䭃則問䑎䌭䱏剏›牴湡灳牡湥t捁硴

» 47 hafa sagt sína skoðun

30.11.2004 15:06:49 / binni29

Próf !!

Nú er Binninn í prófum, sem þýðir að ekkert blogg mun koma hérna í einhvern tíma ... bíðið bara róleg og verið í tjaldi með síðum hárum !!

Lag dagsins: Ég kalla á tilfinningu - Tvíhöfði

Mottó dagsins: Armband verður að pastaslaufum !!


» 2 hafa sagt sína skoðun

29.11.2004 12:11:11 / binni29

Helgin !!

Ég hef eiginlega ekki orð um þessa helgi...bendi á bloggið hennar TINNU til að þið fáið lýsingu á henni.

Takk.

Dans aldarinnar: Dans Trans Batusi

Lag dagsins: Lagið sem var spilað undir Batusi dansinn í Miðgarði


» 44 hafa sagt sína skoðun

27.11.2004 12:04:54 / binni29

Veistu hvaða dagur er....já.... það er balldagur !!

Loksins er komið að því að það verði Miðgarðsball ... og það með Skítamóral !!! Uppáhaldshljómsveitin mín alveg hreint....glúgg glúgg....eða ekki !! :) Ég drakk ekkert á fimmtudag og heldur ekki í gær...þvílík hetja alveg hreint...ekki einn bjórsopa þrátt fyrir fullt af köldum bjór í ískápnum hjá mér...það finnst mér afrek. Smárinn var að spila við Tindastól-B í gær, og töpuðum við með 20 stigum, en var það engin vonbrigði þar sem við vorum alls ekki að spila illa, Tindastóll var bara betra og það er auðvelt að viðurkenna það. Sjálfur skoraði ég 18 stig , sem er ágætt á mælikvarða minn...stigaskor mitt í leikjum vetrarins hefur verið : Tindastóll B - Smárinn = 20 stig Smárinn - Dalvík = 18 stig Smárinn - Laugar = 12 stig Smárinn - Tindastóll B = 18 stig Þetta gerir akkúrat 17 stig að meðaltali í leik. Hetja gærdagsins var samt Hákon sem blokkaði hvert skotið á fætum öðru . . . við tveir vorum hetjurnar. Hins vegar skoraði Kjartan 23 stig....veit ekki hvernig þau komu.... flest á vítalínunni...hummm...semsagt að við vorum sáttir við þennan leik, og fögnum við honum í kvöld í Miðgarði, dansandi Batusi á hyper hraða !! Svo vil ég senda baráttukveðjur til Túttnanna og óska þeim góðs gengis í teitinu þeirra í orlofshúsinu þeirra. SEE YA. Lag dagsins: The Bucket - Kings of Leon

» 78 hafa sagt sína skoðun

24.11.2004 19:02:26 / binni29

For you to read !!!

Saga sem ekki verður gleymd.

Hróarskelduferð 2004.

 

Eftir gífurlega bið , eða frá því í Janúar árið 2004, var loksins stigið upp í flugvél á leið á hina margrómuðu Hróarskelduhátíð. Hákon var þar einn á ferð en hann var á leið til Kaupmannahafnar, og þaðan til Stokkhólms til að ná í Binna, sem bjó þar á þeim tíma. Það byrjaði nú ekki það vel fyrir Hákon þegar hann kom á Kastrup flugvöll, að flugvélin sem hann átti að taka til Stokkhólms, var í hinum endanum á flugstöðinni. Nú voru góð ráð dýr, og hlaupahraði meiri, enda hljóp hann eins og hann ætti lífið að leysa og náði að lokum fluginu , rétt fyrir lokun á hliðinu.

Þá voru þessi vandamál úr sögunni, að við héldum, en þetta var nú samt bara byrjunin á öllu ruglinu sem eftir átti að fylgja.

Frá Stokkhólmi lögðum við svo á stað, á laugardeginum fyrir Hróarskeldu. Við keyrðum Audi bifreið yfir næstum alla Svíþjóð, en auðvitað urðum við að stoppa á leiðinni á einhverju hóteli til að gista og safna kröftum.

Eftir að hafa stoppað í næstum hverju dreyfbýli sem á vegi okkar varð, alltaf búið að neita okkur um gistingu, vegna einhverjar hátíðar í Svíþjóð, þá fundum við loksins eitthvað hrikalega ónotalegt vegamótel. Þetta var nánast eins og í bandarísku bíómyndunum, með hrikalega vonda matinn og hótelstjórinn eins ómálgefinn og hægt er, með fýlusvip og vonda lykt. Þetta var alveg til þess að hlægja yfir. Þarna gistum við yfir eina nótt. Svefninn var alveg það sem okkur vantaði, við pökkuðum aftur í töskur og kvöddum vin okkar hótelstjórinn og þutum á brott í átt að partýi lífs okkar. Við vorum búnir að keyra á mjög miklum hraða í 2 klukkutíma á hraðbrautinni til Köben, áður en Hákon uppgvötaði eina hræðilega staðreynd. Hróarskeldumiðinn hans hafði gleymst á vegamótelinu. “Guð minn góður” hugsaði ég með með mér og var skapi næst að henda honum út á ferð og bakka svo yfir hann, aftur og aftur. Það að þurfa að snúa við og ná í miðann, í von um að einhverjar ræstikerlingar væru ekki búnar að ryksuga miðann upp með Phillips ryksugunum frá árinu 1978. Þegar við komum loks að vegamótelinu aftur þá fengum við lykilinn af herberginu okkar, og viti menn… var ekki miðinn samankrumpaður undir rúminu hjá Hákoni. Þegar við sáum þessa sjón þá gátum við ekki annað en hlegið, og hlegið og hlegið okkur máttlausa yfir þessu uppátæki okkar. Loksins vorum við tilbúnir að halda á Hróarskelduhátíðina og ekki var að spyrja að þeir 8 dagar sem við áttum þarna, innan um Svía,Norðmenn,Dani og allskonar vitleysingja, voru þeir bestu 8 dagar í lífi okkar og munum við aldrei gleyma hremmingum okkar á skítuga vegamótelinu með leiðindarhótelstjórann.

Takk fyrir okkur Hróarskelda.


» 44 hafa sagt sína skoðun

24.11.2004 16:24:03 / binni29

Pirringur

Já ég er pirraður.... aðallega út af tölvuleik... heimskulegt í rauninni.

Það styttist óðfluga í frumsýningu Batusi dansins í Miðgarði ... æfing verður sennilega haldin fyrr um kvöldið fyrir áhugasama..... kemur allt í ljós.

Hverjir af ykkur ætla að hrynja í það og dansa batusi dansinn til að gleyma ?

I WANT RESPONSES !!


» 2 hafa sagt sína skoðun

22.11.2004 15:47:33 / binni29

Batusi !!!

Já .... fyrir ykkur aulana sem kunnið ekki Batusi dansinn..

HÉRNA GETIÐ ÞIÐ LÆRT HANN !!!

Lærið hann í hvelli , eða þið hlaupið í kekki !!!...þetta rímaði víst...Ó!


» 2 hafa sagt sína skoðun

21.11.2004 21:44:43 / binni29

!!!!!

Ú ú ú ... gleymdi að minnast á þrennt !!!

* Ekki gleyma að kasta atkvæði í könnunninni minni...mjög vísindaleg og góð könnun.

* Það fer að líða að 5000dasta gestinum á þessa síðu...spennandi

* og ekki klikka á því að kvitta í gestabókina mína !

Takk fyrir.


» 96 hafa sagt sína skoðun

21.11.2004 21:42:27 / binni29

Sunnudagur.

Þessi dagur einkenndist af almennri leti, fótboltaglápi og lærdómi. Punktur.

Fór aðeins á barinn í gær með Tinnu og Evu , ágætis slatti á barnum en ég endaði upp í boxi með Kalla að spila "Take on með" með gleðipillisveitinni norsku AHA. Alveg afskaplega rómantísk stemning uppi hjá okkur tveim. :D

Næsta vika fer í að læra eins og brjálæðingur fyrir prófin, fara á 2 æfingar og síðan leik í körfubolta og vinna á fimmtudaginn. En maður verðlaunar sig með Skítamótals balli í Miðgarði á laugardagskveldi. Hverjir ætla að djamma með mér ? Ég veit að Óní og Loftur þykjast ætla að keyra og eitthvað... eru allir í þeirra sjálfsblekkingu ? I want some answers people...ég treysti allaveganna á þig Hákon. Ég ætla ekki að dansa Batusi einn við lagið Hey þú...ekki séns.

Lag dagsins: Take on me - Aha    og    Meira dót - Buttercup


» 114 hafa sagt sína skoðun

20.11.2004 18:48:59 / binni29

Tindurinn klifinn !

Þessi dagur hefur verði með óvenjulegasta móti. Það er ekki alla laugardaga sem maður rífur sig upp í fjallgöngu klukkan 10 um morguninn með 4 öðrum nemenum, Kela og Árna Stef... ó nei...það er eitthvað sem gerist ekki oft.

Það var semsagt ég , Kalli, Kristín, Hugrún og Stefý sem mættum tilbúin í slaginn um morguninn og klifinn var Tindastóllinn, alveg upp á tind. Þetta var þrælerfitt en maður var helvíti sáttur eftir þetta samt. Ekkert betra en að koma heim, rífa sig úr sveittum gammosíunum og skella sér í pottinn með 2 - 3 bjóra... that´s the life. Kannski maður geri þetta um hverja helgi.... já...og apar fljúga úr rassgatinu úr mér. Hehe 8)

Ég er samt að hrynja niður úr þreytu hérna, meðan mamma og pabbi súpa á sérríinu og ætla að skella sér á djammið í kvöld... og ég sorglegastur í heimi bara heima að sötra bjór og vera þreyttur:^)

Ég er semsagt byrjaður að nota broskalla og liti og hvað eina í bloggið mitt . . þótt að það séu nú ekkert margir sem eru að skoða þetta, en fyrir ykkur sem eruð að skoða þetta...enjoy the bright and fuzzy colours.

Lag dagsins : Eitthvað svaka fjútt lag með Mezzoforte sem mamma og pabbi eru að hlusta á

... og munið bara að skemmta ykkur um helgina og taka nokkur Batusi spor handa mér og Hákoni :haha:


» 100 hafa sagt sína skoðun

20.11.2004 09:34:20 / binni29

Toppen-chair !

Nú sit ég hérna fyrir framan tölvuna og bíð þess að geta lagt af stað í eitt stykki fjallgöngu upp á Tindastól...úffsadeisííí.

Þetta verður semsagt einhverjir 4-5 tímar af púli með Árna Stef í ógeðslegum kulda lengst upp í rassgati frá raunveruleikanum....er eitthvað ljúfarara ?

Ég missi þar af leiðandi af Man Utd- Charlton ... annar júnæted leikurinn sem ég missi af vegna einhvers heimskulegs athæfis um helgi.

Það var víst einhver bjórdrykkja í gær, ekki það að ég viti eitthvað um það mál, enda var ég hinn rólegasti að horfa á Idol, stuttmyndir og 70mín 3 áður en ég var truflaður af einum dreng sem sárvantaði far heim til sín...þá gaf ég mig. ;)

Svo er að fara að taka við síðasta kennslusvikan í skólanum. Þá ætlar Binni sér að vera duglegur að mæta í alla tíma og gera öll verkefni og lesa allar bækur og sigra heiminn semsagt. Andskoti gæti þetta orðið leiðinleg vika...auk þess körfuboltaæfingar og vinna, og ekki má gleyma skímó svo á laugardaginn...sjjittt.8|

Lag dagsins: Fool´s corner - Saybia

Vonbrigði helgarinnar: Að fara ekki í sjallann á Papana

Tennur mánaðarins: Tennurnar í Bingóinu

Binni - fjallgöngumaður að degi til, brjálaður friskódansari að kveldi til.


» 95 hafa sagt sína skoðun

19.11.2004 10:19:56 / binni29

Mynd allra tíma !

Þurfið ekki að commenta ef þið treystið ykkur ekki til þess !! :lol:


» 0 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 7